Josh Dun
Joshua William Dun (f. 18. júní 1988) er bandarískur tónlistarmaður. Hann er best þekktur fyrir að vera trommuleikari hljómsveitarinnar Twenty One Pilots þar sem hann spilar með Tyler Joseph. Einnig spilar hann á önnur ásláttarhljóðfæri, trompet og hljómborð. ÆskaDun var fæddur í Columbus, Ohio. Hann á tvær systur og einn bróður. Hann byrjaði að æfa á trompet áður en hann ákvað að kenna sjálfum sér á trommur. Ein aðferð sem hann notaði við æfingar var að endurtaka takta sem hann heyrði í lögum.[1] Hann vann hjá Guitar Center í þrjú ár þar sem hann vann með fyrrverandi meðlim Twenty One Pilots, Chris Salih, sem seinna kynnti hann fyrir Tyler Joseph.[2] FerillHouse of HeroesÍ mars 2010 byrjaði Dun í hljómsveitinni House of Heroes eftir að trommarinn, Colin Rigsby, tók sér hlé. Í stað Rigsby spilaði Dun undir mörgum lögum breiðskífunnar Suburba. Hann tók þátt í tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar þangað til að Rigsby snéri aftur.[3] Twenty One PilotsDun planaði upprunalega að flytja til Nashville, Tennessee til að sækjast eftir feril í trommuleik, en var stoppaður af þáverandi trommara Twenty One Pilots, Chris Salih, sem bauð honum plássið sitt. Hann spilaði undir á einum tónleikum með Tyler Joseph eftir að Salih og bassaleikarinn Nick Thomas yfirgáfu sveitina. Þeir spiluðu eitt lag áður en lögreglan aflýsti sýningunni. Eftir það varð Dun varanlegur meðlimur hljómsveitarinnar. Hann hefur unnið í öllum breiðskífum hennar frá árinu 2011. Dun og Joseph skrifuðu undir plötusamning hjá Fueled By Ramen árið 2012. Þeir hlutu Grammy verðlaun árið 2017 í flokknum besti poppflutningur tvíeykis/hóps.[4] EinkalífBæði Dun og Tyler Joseph eru með „X“ húðflúr sem þeir létu tattóvera á sig á sviði. Merkið táknar tileinkun þeirra til aðdáenda þeirra í Columbus, Ohio.[5] Dun byrjaði í sambandi með leikkonunni Debby Ryan árið 2013 og voru þau gift þann 31. desember 2019.[6] Sjá einnigTilvísanir
Tenglar![]() Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Josh Dun. |