Share to: share facebook share twitter share wa share telegram print page

Spevsippos

Spevsippos
Spevsippos
Persónulegar upplýsingar
Fæddur407 f.Kr.
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilFornaldarheimspeki
Skóli/hefðPlatonismi
Helstu viðfangsefniSiðfræði

Spevsippos (407 f.Kr.339 f.Kr.) var forngrískur heimspekingur. Spevsippos var systursonur Platons.

Eftir að Platon féll frá tók Spevsippos við stjórn Akademíunnar og stýrði skólanum í átta ár. Þegar Spevsippos varð of veikur til að geta sinnt starfi sínu tók Xenokrates við stjórninni. Ólíkt Platoni rukkaði Spevsippos nemendur um skólagjöld.

Spevsippos var kunnur fyrir hófleysi og munað. Hann er sagður hafa dáið úr sjúkdómi eða hafa framið sjálfsmorð. Að honum látnum eignaðist Aristóteles bókasafn hans.

Spevsippos aðhylltist kenningar Platons en hafnaði eigi að síður frummyndakenningunni.

Tengill

Prefix: a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9

Portal di Ensiklopedia Dunia

Kembali kehalaman sebelumnya