Machine qui rêveMachine qui rêve (íslenska: Draumavélin) er 46. Svals og Vals-bókin og sú fjórtánda eftir þá Tome og Janry. Hún kom út á frummálinu árið 1998 en hefur enn ekki verið gefin út á íslensku. SöguþráðurBlaðakonan Bitla kemur til fundar við Val og biður hann um aðstoð við að rannsaka dularfulla starfsemi líftæknifyrirtækis. Valur er á leið til Balí og verður því úr að Svalur kemur til aðstoðar. Hann dulbýr sig og gerist sjálfboðaliði í rannsókn hjá fyrirtækinu. Flóttaleg aðstoðarkona laumar til hans skilaboðum um að flýja, rituð aftan á aðgangskort. Svalur læðist inn á rannsóknarstofu og bregður sýnilega. Næst rankar Svalur við sér minnislaus í polli úti á götu. Hann staulast heim til sín við illan leik, en þar bíða skuggalegir menn sem reyna að skjóta hann. Svalur flýr á fund Bitlu, en aftur er honum veitt fyrirsát. Andlit hans birtist í öllum fjölmiðlum, þar sem hann er sagður háskalegur hryðjuverkamaður á flótta. Smátt og smátt öðlast Svalur minnið aftur og áttar sig á að lausn gátunnar sé að finna í líftæknifyrirtækinu, þangað sem hann snýr aftur. Í ljós kemur að fyrirtækið hefur á laun stundað það að klóna menn og að flóttamaðurinn í sögunni hafi í raun ekki verið Svalur heldur eftirmynd hans. Hinn raunverulegi Svalur, Bitla, Valur og fulltrúar yfirvalda handtaka forsprakka fyrirtækisins, en aðstoðarkonan flóttalega reynist löggæslumaður í dulargervi. Rannsóknarstofan er sprengd í loft upp, en Svalur og Bitla hjálpa fyrst hinum klónaða Sval að flýja án þess að nokkur viti. Sögunni lýkur þar sem Bitla og klónaði Svalur eru saman um borð í flutningaskipi á leið í burtu og virðast býsna náin. Fróðleiksmolar
|