Jenny Boucek
Jennifer Dawn Boucek (/ˈbuːsɛk/ BOO-sek; fædd 20. desember 1973) er bandarískur körfuboltaþjálfari og fyrrum leikmaður. Boucek spilaði háskólakörfubolta fyrirfyrir University of Virginia og síðar sem atvinnumaður fyrir Cleveland Rockers í WNBA og Keflavík á Íslandi þar sem hún varð bæði Íslands- og bikarmeistari auk þess að vera valin besti erlendi leikmaður tímabilsins.[1] Boucek hóf þjálfararferil sinn árið 1999 sem aðstoðarþjálfari hjá Washington Mystics. Hún starfaði síðar sem aðstoðarþjálfari Miami Sol og Seattle Storm áður en hún var útnefnd yfirþjálfari Sacramento Monarchs árið 2007. Eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari Storm aftur, varð hún yfirþjálfari liðsins árið 2015. Árið 2018 varð hún þriðja konan til að þjóna sem aðstoðarþjálfari í NBA þegar hún var ráðin af Sacramento Kings. Hún starfaði síðar sem aðstoðarþjálfari hjá Dallas Mavericks og hefur verið aðstoðarþjálfari Indiana Pacers frá árinu 2021.[1] Tilvísanir
|