FuglaflensaFuglaflensa er inflúensa af A stofni sem herjar á fugla. Veirurnar sem þessu valda eru skyldar öðrum inflúensuveirum sem þekkjast í spendýrum og geta því sýkt þau eftir beina snertingu við sýkta fugla eða fuglablóð. Mikil fjölmiðlaumræða hefur verið síðan fuglaflensuveiran H5N1 fannst í mönnum 1997 en sú hætta er yfirvofandi að veiran stökkbreytist á þann hátt að hún geti borist milli manna líkt og spænska veikin gerði á sínum tíma. Ef veiran breytist á þann hátt að hún fer að smita manna á milli þá er hætta á heimsfaraldri inflúensu. Ekki er vitað hvort það gerist eða hvenær, né heldur hvaða eiginleika veiran hefur eftir að hún hefur breyst en margar þjóðir eru í viðbúnaðarstöðu og hafa sumar t.d. Norðmenn sett fram viðbragðsáætlun við stökkbreyttri fuglaflensu. Eins hafa víða verið hertar reglur um alifuglarækt.
Fuglaflensa á ÍslandiFuglaflensa var staðfest í fyrsta skipti á Íslandi í þremur villtum fuglum í apríl 2022 en fuglarnir voru heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súla rétt við Strandakirkju við Suðurstandaveg. Einnig sýndu heimilishænsni á bænum þar sem hrafninn fannst einkenni og voru aflífuð.[1] Þann 25. mars 2022 voru settar sérstakar tímabundnar varnaraðgerðir til að reyna að fyrirbyggja að fuglaflenska berist í alifugla [2] Heimildir
Tilvísanir |