F-35 Lightning II![]() ![]() Lockheed Martin F-35 Lightning II er lína af bandarískum eins hreyfils og eins sæta orrustuþotum. Þotan er fjölhæf en hún getur nýst í orrustum við aðrar þotur og loftárásir ásamt því að nýtast vel í upplýsingagjöf og njósnum. Lockheed Martin hannar og framleiðir vélarnar en sumir hlutir í vélunum koma frá öðrum flugvélaframleiðendum eins og Northrop Grumman og BAE Systems. Tilkoma F-35 er útfrá verkefninu Joint Strike Fighter Program, útboð fyrir nýrri fjölhæfri þotu til að taka við eldri þotum sem voru í notkun hjá herum Bandaríkjana, Bretlands, Ítalíu, Kanada, Ástralíu, Hollandi, Danmörku, Noregi og áður Tyrklandi. Lockheed vann útboðið með sinni hönnun nefnd X-35 gegn Boeing með þeirra hönnun að X-32. AfbrigðiF-35 kemur í þremur týpum sem henta í mismunandi verkefni F-35AF-35A útgafan er CTOL (Enska: Conventional takeoff and landing) sem hentar fyrir hefðbundnar aðferðir við lárétt lofttak og lendingu á flugvöllum. F-35BF-35B útgáfan er STOVL (Enska: Short takeoff and vertical-landing) getur tekið á loft á styttri flugbrautum en F-35A og getur lent lóðrétt. F-35CF-35C er hönnuð fyrir notkun á flugmóðurskipum og nýtir þá CATOBAR búnað. (Enska: Catapult Assisted Take-Off Barrier Arrested Recovery)
Ítarefni
Tengt efniTenglar![]() Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist F-35 Joint Strike Fighter.
|