Cristóbal Bencomo y Rodríguez![]() Cristóbal Bencomo y Rodríguez (30. ágúst 1758 í San Cristóbal de La Laguna, Tenerife, — 15. apríl 1835 í Sevilla) var spænskur prestur og skriftafaðir Ferdinands VII konungs Spánar.[1][2] Hann gegndi einni af mikilvægustu stöðu í kaþólsku kirkjunni á Spáni. Bencomo y Rodriguez var skipaður erkibiskup Heraclea af Píus VII páfa[3][4] og var drifkrafturinn á bak við stofnun háskólans La Laguna (sá fyrsti á Kanaríeyjum) og biskupsdæmis í San Cristóbal de La Laguna (þangað til hafði verið biskupsdæmi á Kanaríeyjum aðsetur í Las Palmas de Gran Canaria). Biskupsdæmið nýja náði yfir eyjurnar Tenerife, La Palma, La Gomera og El Hierro.[5] Bencomo hlaut orðu Karls III.[6] Árið 1818 bað Ferdinand VII Bencomo y Rodriguez að vera hluti af rannsóknarrétti af Spánar, en hann afþakkaði það.[7] Tilvísanir
|