Crack the Skye
Crack the Skye er fjórði geisladiskurinn eftir bandarísku þungarokkshljómsveitina Mastodon en hann var gefinn út 24. mars 2009 af Reprise Records.[1][2] Diskurinn komst í 11. sæti á Billboard 200 en hann seldist í 41.000 eintökum fyrstu vikuna.[3] Í Ástralíu komst diskurinn í 19. sæti.[4] Í september 2010 hafði diskurinn selst í 200.000 eintökum í Bandaríkjunum sem gerði hann söluhæstu plötu Mastodon. [5] Crack the Skye er fyrsti geisladiskurinn þar sem að trommuleikarinn Brann Dailor var þriðji söngvari. Tónlist og texti![]() Trommuleikarinn Brann Dailor lýsir disknum eins og hann sé "einbeittari" en fyrri diskurinn Blood Mountain. [6] Dailor sagði að diskurinn tengdist m.a. fagurfræði og list frá keisaraveldi Rússland, það að vera út úr líkamanum sínum og kenningar Stephen Hawking um ormagöng.[7]. Ásamt því þá var Platan var til að heiðurs systur Brann Dailor en hún, Skye Dailor, framdi sjálfsmorð þegar hún var 14 ára. ViðtökurUpphaflegar viðtökur við Crack the Skye voru mjög góðar. Á Metacritic, sem gefur einkunn upp í 100 byggt á mismunandi umsögnum gagnrýnenda, fékk diskurinn 82, byggt á 29 umsögnum. [8] Time Magazine setti diskinn í 3. sæti í "topp 10 platna frá 2009" [9]. Diskurinn var einnig valinn diskur ársins hjá Rock Sound. Einnig komst diskurinn í 17. sæti yfir bestu diska ársins hjá Spin Magazine [10]. LagalistiÖll lög voru samin af Mastodon, fyrir utan "Crack the Skye" (Scott Kelly með viðbót við textann).
References
|